glæsilega bloggið mitt:)

TOPP SÍÐA!!!

10.06.2007 12:59:24 / bjarney_e

útlandið

hæ hó, ég hef bara ekkert nennt að blogga, finnst það eitthvað leiðinlegt held ég bara;) en ætlaði bara að skrifa nokkur orð áðuren ég fer til útlandsins, er að fara til noregs, verð þar í 4 daga og fer á Keane tónleika:) og svo verður flogið þaðan til englands, verð þar í 3 daga og fer á Muse tónleika á nýja wempley(biðst afsökunar ef þetta er vitlaust skrifað) Hlakka alveg skítlega mikið til, held af stað til rvk með Valda og Þorláki í fyrramálið;) best að fara að pakka:p Bless bless húrrum hæ

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 15:26:09 / bjarney_e

hóóóó

Hæ hæ, það er kominn almennur leiði í mig, og innifalið í því er bloggleiði! Námsleiði og fleira tilheyrandi. Nýjustu fréttir eru þær að Lovísa Jónsdóttir er fyndin:
Lovísa skrifaði: 
Mér finnst eins og þú ættir að skipta yfir í bloggar.is
og skíra þá síðuna Bjarney.bloggarekki.is
þú ert með dröllöna upp á bak sko!
Ó nei, það ætti frekar að vera bjarney.bloggarþegarhennihenntar.is og líklega mætti það ekki vera Bjarney því að það heita alveg nokkrir Bjarney á þessu landi(sem kom mér reyndar á óvart) og endaði þetta líklega sem: Bjarneyeinsarugl.bloggarþegarhennihenntar.is. En mér fannst þetta í alvöru fyndið sko;) no kaldhæðnz
En það heitasta í fréttum er það að ég brá mér í kaupstaðinn um helgina(rvk). Ég og bóndi minn keyrðum suður í vitleysuna. Það var alveg hreynt hin ágætis ferð. 2. bíó ferðir, vöffluvagninn og smá kringlerí! Fór á blades og glory og the reaping í bíó, er ekki sú sleipasta í enskri stafsetningu og stafsetingu almennt þannig þið verðið að afsaka. Blades var alveg óógeðslega fyndin og ég mæli svaka með henni, reaping var sonna skerí og það sem undirstrikaði gæsahúðina var 5 gráðu kaldur vindur sem lék léttleikandi um mann á meðan myndinni stóð, á hárið á manni að bærast í bíói? á maður að þurfa að vera kapp klæddur í bíói? nei ég held ekki og ég er stór móðguð! En það var eitt glatað við þessa mynd og eins með margar aðrar sonna skerí myndir, að það er verið að gera bregðiatriði úr öllu, bara hún lokaði bílhurðinni BAMMM og maður er með hnút í maganum allann tímann því manni er alltaf að bregða útaf einhverjum ofsafengnum hljóðum, stundum verður það bara of mikið fyrir mig, sérstaklega þegar 5 gráðu heit(KÖLD) gola heldur uppi gæsahúð og hrolli allann tímann.
En já ég gerðist klekk sneðug og keypti mér náttföt í krínglz(tíst) joe boxer náttföt á 6000 kall! En djööö er kósí að vera í mjúkum náttfötum sonna fyrripartinn þegar maður er að læra og sonna! Reyndar fer dáldið í pirrurnar á mér að sjá 14-16 ára krakka ALLTAF í náttbuxum... alveg óóóggesslega töff skilörrö;) en þó er það þæginleg "tíska"! Ég keypti mér líka bol í 17, ekki diesel eða neitt, mátaði hann og fór með hann að afgreiðsluborðinnu, 4.990 sagði afgreiðslukonan ég rétti henni kortið labbaði út og þá meðtók ég það 4.990 KRÓNUR8| fyrir einn bol!!! þetta var þá e-r sérhannaður bolur, en það verður að hafa það, ég verð bara að nota hann mikið;) En þetta er komið gott að sinni, best að fara að klára allra síðustu heimavinnu vetrarins(vorsins) í kósí náttfötum;) bæjó bæjó:haha:

Bjarney

» 7 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 23:43:58 / bjarney_e

Krúttleeegt

JeJe, smá rappari í mér í dag tbh!! En allt nett á kantinum hjá mér bara, í nettu páskafríi og búin að slaka vel á, fór á ball í gær og það var *gg*(neeeeeehhhh djók) gaman!! dansaði einsog óður apaköttur og fór með fleypur! Sumir skemmtu sér samt ekki jafn vel og aðrir;)

En ég bíð bara spennt eftir því að fá að smjatta á páskaegginu mínu, samt er ég í smá sykursjokki núna eftir bonbon nammið hennar systur minnar! En það er hörku bakari í mér, bakaði vínabrauð og þau eru að sigra heiminn, ma pa og li bara vitlaus í þetta og ég líka off kors! Síðan er það bara U2 tribute á morgun í búð Egils! Ég ætla að mæta og vera með grúbbíustæla! En ég vona að allir sem lesa þetta eigi bara góða páska, en ég vona að páskaeggið hjá þeim sem ekki lásu og kommentuðu bráðni óvart í sólinni!!:evil:

Eru þetta ekki mestu krútt í heimi?

Og sonna til þess að vekja upp krúttið í ykkur þá skuluði fara inná þennann link og horfa á myndbandið http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1260748 Og svo megiði segja í skoðunum hvor er meira krútt!!

Og svo klósettpappírsauglýsinga hvolp til að gera þetta blogg það krúttlegasta í sögu krúttlegra blogga!


» 18 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 18:46:58 / bjarney_e

JAAHH

Haaalllóóó, langt síðan maður hefur gefið sér tíma í að blogga, enda mikið að gera þessa dagana! Við stelpurnar í Ungfrú Austurland erum í stífum æfingum og auðvitað má ekkert óhollt borða þessa viku, melónur, bananar og skyrdrykkir eru máltíðir vikunnar utan við eitt og eitt svindl:haha: Síðan skreppur maður stundum á saladbarinn í Egilsbúð og fær sé loðið salad;) girnó! En auðvitað tekst mér að meiða mig og fá marblett!!! er komin með einn gullfallegann og efnilegann á mjöðmina! en ég sný bara hægri hliðinni í áhorfendur! Svo er ég líka að drepast í hausnum því mér tókst að labba á hátalara sem var uppá vegg í Bjarneyjar hæð og hornið á honum beint í hausinn á mér! Blanda af miklum afkára og sársauka!

       Mamma og pabbi voru að koma frá Akureyri með fullann poka af alskonar físnum! fékk mér nokkrar súkkulaðirúsínur!:$ En baksviðs á laugardaginn ætlum við stelpurnar að hafa feitann nammipoka og pizzu og kanski kökur og eitthvað:p já það er sko erfitt að borða hollt í 7 daga;) þetta eru bara 7 dagar og ég er að deyja! Þvílíkur nútímaunglingur! En það er ekki auðvelt að fá flott tan!!!! fór í 2 ljósatíma og bar svo á mig brúnkukrem og ég er á litin einsog gulrót+epli! ég er sona rauðgul! WERY NICE YEAH! Síðan er það tripp uppí egs á morgun og maður fær litun og plokkun, síðan hár lit og klipp á fimmtudaginn;) Þetta er allt hið svaðalegasta bara! Síðan bara eintómar æfingar plús ritgerð sem ég veit ekki hvenær ég ætla að gera því ég er ekki enn byrjuð og þarf að skila henni á föstudaginn!!! ég er svo mikill letingi og geymi alltaf hluti þangað til á ömurlegustu tímunum! En ég nenni ekki að tala meira um mitt innihaldssnauða líf! Endilega fariði inná http://www.ungfruisland.is og kjósið já... bara þá sem þið viljið;) Enginn þrýstingur að kjósa mig sko... hehemm..plís...neeee;) Ég er viðbjóður á þessari mynd by the way! er miklu sætari í persónu sko!!;) hmmmmmmmmmmmm! BÆBÆ FOKKERS(50)!!

 Bjarney Sörens


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 11:13:16 / bjarney_e

Laugardagsmorgunn

Já góðann daginn, klukkan er 10:53 á Laugardagsmorgni og ég er vöknuð! vaknaði reyndar um 10! Enda fór ég í háttinn klukkan 12! En ég skrapp í BOOOORGINA um seinustu helgi, gisti á grandhótel og fór á queen showið á brodway:) það var mega fjör, heppnaðist mjög vel hjá strákunum! En menn fengu ekki nóg af brodway, það var nebblega skellt sé í dinner og tinu turner daginn eftir! Síðan fórum við á Sálina á Nasa, og ég bara skil ekki hvernig er hægt að skemmta sér í svona þrengslum.. ég var alltaf að bíða eftir því að lenda undir og kremjast til dauða! en já það tók okkur um 30 mín að TROÐA okkur aftur út! En þetta er greinilega það sem borgarbarnið fílar, en sona sveita barn einsog ég verður að hafa sitt speis til að sletta úr klaufunum sko, og kanski minna um almenna nánd! Maður var að borða hárið á einum á meðan einhver annar var að strjúka sveittri síðu uppað manni, yeah!!!! Nei frekar vildi ég hafa Sidda eða Eldklofið hlaupandi útum allt í leit að fórnarlömbum! Siddi er þó með ALLT á hreynu, held hann viti afmælisdag og fæðingarár hjá öllum í Fjarðarbyggð! En hann veit allavegana að ég er orðin 18 og er ekki að reyna að henda mér út einsog sumir! En já þetta svitabað var nú ekki það eina sem ég afrekaði í BORGINNI!! Ég keypti mér páfagauk, lítinn sætann grænann og gulann páfagauk, hann er algjört rassgat, 3-4 mánaða gamall og ég held hann eigi að heita Gussi ef hann er kall sem kemur í ljós þegar hann verður kynþroska:) En ef þetta er kelling þá veit ég ekki... einhverjar uppástungur? Síðan var farið að máta kjóla sem var mjög gaman! En ég hitti Mist og Bergrósu í rvk og Bergrós var svo næs að keyra með mig og Mist útum allt að leita af páfagauk, síðan fórum við Bergrós í keilu og ég druuullu tapaði!:( Svekkelsi! En jæja mamma og pabbi koma heim á þriðjudaginn frá dk:) Og mamma er komin á þega lista:D Þannig að það gengur allt vel, en þetta þíðir eitt, ég þarf að taka til í þessu tveggjahæða ruslabýli;) Og baka gerbollur handa ma og pa einsog ég lofaði;) En takk fyrir að lesa þetta drullu netta sveitta blogg;) bless bless

Bjarney Einarsdóttir 8|



» 9 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 23:35:08 / bjarney_e

Frumlegheit og pirringur

Vá var búin að skrifa heilt blogg hérna! ætlaði svo að copy paste a það til vonar og vara en gat það ekki og talvan ýtti af sjálfdáðum á back! Bloggið fjallaði í stuttu máli um: Ég er bara hress, ma og pa enþá í Danmörku, maður er farinn að sakna þeirra smá,:( búin að vera úti í 3 vikur! Maður er ekki duglegur að taka til! Þarf að fara að taka tiltekt!

Er orðin dugleg í ræktinni á minn mælikvarða! Það er búið að vera brjálað veður, risastór snjókorn í gær, held það heiti hundslappadrýfa, segið þetta orð 10 sinnum uppá flippið! Ætlaði að keyra töff í gegnum risa poll í dag en hvarf í pollinum, sá ekkert og flaut hægt í gegnum hann, held ég hafi haldið kúlinu! 

Það fer að styttast í rvk ferð!:D er búin að panta flug suður en ekki austur og er hrædd um að festast í rvk, treysti ekki hoppi! Er orðin þreytt og subbuleg og ætla í sturtu uppá tilbreytinguna;) Skelli inn frumlegum spurningalista sem ég stal af Lovísu síðu! Veriði svo væn að svara þessum smekklega litla spurningalista!8|

1. Hefuru slegið einhvern í andlitið?
2. Hve gamall/gömul ertu
3. Frátekin/n eða einhleyp(ur) ?
4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?
5. Dreymir þig á nóttunni?
6. Hefuru séð lík?
7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?
8. Ertu að fíla x factor?
9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega?
10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því.   Hvað myndi það vera?
11. Treystiru lögreglunni?
12. Hlustaru á kántrí?
13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér?
14. Ef þú gætir breytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera?
15. Myndiru deita mig?
16. Í hverju sefuru?
17. Hefuru pissað úti?
18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig ?
19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag?
20. Hvað finnst þér best um mig?
21. Er ég hot?
22. Hvað er uppáháldsliturinn þinn?
23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera?
24. Hver er minn stærsti galli?


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 15:27:25 / bjarney_e

Fjör-fiskur

Halló halló, njúvó bloggó! jæja dembum okkur bara beint í þetta... fór til rvk þann 11 jan, það var fjör.. party on! verslaði einsog óhemja! varð svo slöpp og með kvef og leið áfram einsog afturganga um verslanamiðstöðvarnar, aaaa buxur, aaaa peysa! en gerði þó ágætis kaup! síðan fór ég í áttræðis afmæli hjá afa Þorláks, honum Lalla! hann er eitur hress kall og er mjög ungur í anda, þetta afmæli var mjög fínt og ég át yfir mig:) meget got að éta! síðann daginn eftir þegar ég var ný búin að melta fór ég í skírn hjá Eyrúnu litlu frænku Þorláks, þvílíkt krútt! og þar voru kkökur og heitir réttir, át auðvitað yfir mig þar líka, svo var bara haldið heim! en þess má geta að á leiðini til egs þann 11 var brjálað veður og við vorum í 1 gír næstum  því allann fagradalinn og flugvélin beið eftir okkur, og flug fólkið(veit ekki titlana sko) beið í andirinu, tók farangurinn okkar og lét okkur hafa miðana okkar! og við hlupum beint útí vél.... er ekki bara málið að gera þetta alltaf? þvílík þjónusta sko! láta bara alltaf bíða eftir sér svo maður þurfi ekki að tékka sig inn sjálfur og allt þa':D það yrði vinsælt!
 en já að öðru, hvað er málið með fjörfisk? þetta er minn þriðji fjörfisks dagur! og þetta er ekkert lítill fjörfiskur, maður er einsog geðsjúklingur með  þetta! alltaf e-ð með titrandi auga sem  ég byrja svo að lemja aaaaaaa,  try to picture it! svo sona uppá djókið er ég kominn með einhvern yndis sting í hitt augað, sona sviði! ég er búin að fá fjörfisk sona 4 sinnum á meðan ég skifaði þetta blogg og sviðinn er búinn að vera hress líka! i'm a little sexy thing! 
 Til þess að rifja upp gamla tíma horfði ég á múmínálfana í gær! þvílík snilld, það rifjast svo margt upp, fæ  enþá sona  ónota tilfinningu þegar þátturinn er búinn: leikraddir, hljóð og mynd blablablabla... fékk sona ooooooo nei.. en þá horfði ég bara á næsta þátt, nebblega dvd sko;) yeyeye en jæja þá erþetta rugl gott í bili, sjáumst eitur hress á sveitablóti! rock on


» 13 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 15:55:20 / bjarney_e

2006 og 2007

Góðann og blessaðann daginn, þetta er sona típískt 2006 2007 blogg, en það sem er merkilegt við það er að típísku 2006 2007 punktarnir verða fáir, nema kanski e-ð sona ófréttnæmt inná milli því að árið 2006 hjá mér var mjög viðburðalítið, en þó hið fínasta ár, en jæja:
- Ég er enþá í VA og gekk ágætlega, enda var ég bara í 8-9 tímum á viku.

- Ég er enþá með Þorláki mínum, ekkert að plana að skipta.

- Þann 14. júlí varð ég 18 ára og hélt uppá það með mömmu kökum og heitum réttum og bauð vinkonum mínum í kvöld kaffi, og allir voru með sona bleikar kórónur, enda stökkið frá barni til fullorðinnar manneskju mjög stórt.

- Ég fékk bíl í afmælisgjöf frá ma pa og li ZUZUKI BALENO BEIBÍ, tryllitæki

- Ég byrjaði að vinna í olís í fyrasta skipti og er þar enn, það er fínt

- Fór í nef aðgerð mikla og var viðbjóður í mánuð eftir það(nefkirtla rugl og e-ð, ekki lýtaaðgerð;))

- Eina fríið sem ég fór í var eins dags ferð til bakkafjarðar og þorvaldsstaða(sveitabær nálægt bakkafirði) mjög gaman:) haha, vona að fríið verði stærra þetta árið!

- Verslunarmannahelgin var fín og ekki bragðað af drykk djöfulsins vegna síklalyfja v/nefaðgerðar:) Enda er ég ekki mikið fyrir drykk djöfulsins.

- Ég byrjaði að æfa á gítar einusinni í viku og framfarirnar eru gífulegar:)

Já þá held ég að þetta sé að mestu leiti upptalið, man ekki meir í augnablikinu!!:!:

Ég geri miklar vonir til ársins 2007, er í alveg glæpsamlega miklu námi og stundartaflan er pökkuð! eða allavega miðað við það sem hún var í fyrra! ég er alveg skít hrædd við stærðfræði 203, held ég sé komin með meinloku! er svolítið gjörn á að fá meinlokur!! Ég skal fara til útlanda á árinu! Ég vona bara að allt gangi vel á þessu ári og er bara bjartsýn þó svo að það sé ekki allt eins og draumur í dós einsog einhverjir vita. Það er flott að AK stelpurnar hafi snúið aftur:) vona að þær verði duglegar í að draga mig í ræktina!! Síðan er ég að fara til Rvk á fimmtudaginn og vona að það verði bara fleymíng fjör og fryggðar funi, Lovísa ég skal gera mig að fífli fyrir framan fjölskylduna þína aftur!!!En bless í bili, ALLIR AÐ KVITTA
Bjarney litla sörensen!


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 23:51:22 / bjarney_e

Gleðileg jól

hæhæ, og gleðileg jól:) húsið angar af hangikjetslykt sem er ný tekin við af hanborgarahryggs og greni lyktinni.... gæti þetta verið yndislegra? þetta væri fullkomið ef ég væri ekki að fara að vinna í fyrramálið(kl 10, kanski ekkert til að væla yfir). Ég er búin að afreka það að éta þrisvar yfir mig í dag og mér gæti ekki liðið betur og það vottar ekki fyrir samviskubiti.
       Það er eitt sem að lagar þetta allt saman, Lilja syss fékk sona eye toy í playstation frá mömmu og pabba í jólagjöf og ég er búin að vera endalaust í því, ég get ekki sagt annað en að þetta er án efa skemmtinlegasta líkamsrækt sem ég hef stundað!! ég og Vilborg villigrís vorum í þessu í morgun og áðan og já maður svitnar sko í þessu!! hoppandi og hlaupandi einsog hálfviti, sniðugasta dót í heimi!                                                                                                                        Ég fékk æðislega fallega kápu frá mömmu og pabba, og so náttslopp, mamma(+fjölsk) fékk fartölvu og myndaprentara og hálsmen:) hún getur ekki kvartað(og ekki ég heldur) fékk ekkert minna en gítar+gítarstand+gítartösku+tuner frá Þorláki :-** nú verð ég heldur betur að vera dugleg að æfa þessi nokkur grip sem ég kann, þessi gítar er af tegundinni seagull(held það sé skrifað svoleiðis, máfur á ísl) og er víst mjög fínn! fékk svo ilmvötn, trefla, húfu, bækur, boddílósjön og bad head sjampó og hárnæringu með æðislegri lykt. En já ég fékk frábæra bók sem ég var að lesa til 3 í nótt, hún heitir frumskógarstelpa og er sönn saga stelpu sem býr hjá ný uppgvötuðum ættflokki inní frumskógji með fjölskyldu sinni, ekkert smá skemmtileg bók. En jæja þá er þetta komið nóg í bili af gjörsamlega grín snauðu bloggi:) enda er ég salla rólegt jólabarn þessa dagana:) en hvað segja menn? stuð fyrir balli á morgun? endurfundir með Eldklofinu? blæsó
Bjarney eye toy fan


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 23:51:01 / bjarney_e

ELDKLOF

Já kæru lesendur, þið lásuð ekki vitlaust, ég skrifaði eldklof! þetta blogg mun að stóru leiti vera tileinkað hinu eina sanna eldklofi! þannig var nú það að þrjár saklaustar stelpur ætluðu að drífa sig á dansiball! í upphafi voru þær reyndar fjórar en einn lítill svartur sambó varð eftir;) tölum ekkert meira um það! en jájá við komum á staðin og þetta var allt voða saklaust e-ð, Lovísa nokkur mútaði miðasöluni og notaði sálfræðina á þetta. En að lokum var komið inn á ball, þess má geta að ég talaði við Íra!!! og vá írskur hreymur er það krúttlegasta;)  en jájá allt gekk vel og mikið var dansað! Rósa með skirteinið mitt og Lovísa með skírteinið hennar "litla svarta sambó" þetta var allt mjög vel út hugsað, eða hitt og heldur, en jájá byrja ekki dyraverðirnir að ráðast á okkur, ég náttúrulega orðin lögleg en annað gildir um vinkonur mínar tvær, bóbó og rósl! Lovísa notar sálfræðina á þá alla og auðvitað erum við rósa mjög líkar og heitum báðar Bjarney, en þetta gekk allt einsog í draumi þangað til ELDKLOFIÐ mætti! Hún hlustaði sko ekki á neinar sorgar-sálfræði sögur og trúði því þvert á móti að við rósa værum Bjarney og Bjarney Einarsdætur, og hún komst að niðurstöðu...ALLAR ÚT! en ég héllt nú síður, Lovísa stakk sér í burtu með hjálp ljótra orða, orð einsog Joe Dirt klipping og Sandpíks fengu að fjúka, svo ekki sé að gleyma eldklofinu! en sú orðbót kom vegna einstaklega sérstakra buxna sem urðu alltaf ljótari og ljótari gremjunar vegna! en já, kvöldið hjá þeim tveim endaði á lögreglustöðinni, ökuskilríkið mitt á löggustöðini á esk og ég veit ekki hvort ég ´fæ að sjá það aftur! þetta litla saklausta athæfi endaði sem pjúra skjalafals! já já lömbin mín! en hér læt ég fjúka eina góða af okkur þrem, áður en við vorum nappaðar, enda sælar á svip þarna!

Lovísa(lengst til hægri) hefði nú mátt segja sér það að þetta tagl fer ekki við þennan röndótta bol, og svo bíður toppurinn heldur ekki uppá það! en mér finnst ég miklu flottari með dökkt, stutt hár(fyrir miðju) soldið asnaleg á svipin:S og ég veit nú ekki hvað hún Rósa var að pæla með þetta bleika dress;) en við erum glaðar, það gildir einu!!
Fátt hefur gerst seinustu daga, byrja í prófum 6.des og er búin 11. ;) ekki mikið að gera, kæró í reykjó og sonna, glætan að ég nenni að byrja að læra strax fyrir próf, er ekki alveg það vel gefin! en ég býst við að byrja deginum fyrir næsta próf! það er þó ágætis árangur, enda var mér kennt ýmislegt þegar ég var yngri, vel siðað barn!
En að lokum má þess geta að mér tókst að tína annara manna skó, Axel nokkrum Tamzok tókst að gleyma útískónum sínum eftir fél. tíma og auðvitað fengum við þrjár gellur(sjá að ofan) þá hugdettu að binda skóna þannig að þeir héngu útum opin glugga! svakalega fyndið og þroskað! en þegar Axel fer að vitja skónna hengur bara einn útum gluggan og hinn er ekki enn fundinn!!! en ég tel mig vita að um samsæri sé að ræða, skórinn er ekkert tíndur, þetta er bara til þess að láta mig vera voðalega sorry, Lovísa er pottþétt með hann, eða þá að Axel er að ljúga! en þetta blogg er orðið OF langt, nú ætla ég að hætta, bið fólk endilega að svara spurningalistanum frá því í seinasta "bloggi"! 7 skoðanir er glatað! en ég segi bara bless:haha: og góða helgi!!
Kviiiitta kviiiitta kviiiitta... skoooðanir skoooðanir(sálfræði)
Bjarney Einarsdóttir


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 00:02:24 / bjarney_e

yeah wery nice

Jæja, hér kemur eitthvað frumlegt sem enginn hefur gert áður...SPUUURNINGALISTI!! enjoy

1. Miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Dirty or Clean:

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

17. Getum við hist og bakað köku?

18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?

22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 16:47:38 / bjarney_e

ég er geðveikt normal

hæ, núna ætla ég að blogga:

langt síðan ég hef bloggað síðast, en já það sem hefur gerst síðan seinast er m.a. menningarferð, það var ógeðslega gaman maður! sérstaklega leisertag í hermannabúningum útí skógji! maður datt alveg inní þetta, skríðandi eftir jörðinni með byssulínginn sinn, og so bara búmm búmm, sköde sköde med mine bosse venner! hahas trákarnir voru alltaf e-ð ooo þessar stelpur, sitja einhverstaðar í felum og bora í nefið, bara með geðveika karlrembu!!! ég vissi ekki að strákar væru sona í alvörunni! og so voru þeir sem voru seinast úr flest stelpur, og við vorum e-ð 5, en strákarnir 15 eða e-ð!! so í endann, uuu jaa stelpurnar eru kanski bara alveg ágætar í þessu mömömömömö!! fyrst þá var ég fyrst úr! ógeðslega svekkt, og sagði við Lovísu: það er öruglega e-ð að byssunni minni því lífin mín voru alveg öruglega ekki búin!! hún bara: Æ Bjarney greygið mitt hættu þessu væli, þú ert bara léleg í þessu! ég sona jæja þá ókei! og so bara, neinei byssan þín er batteríislaus! HAHA EAT THAT LOVÍSA! en já nóg um þetta, fór líka í frumsíningar partý af þáttunum "tekinn" var þanna einsog e-r fáviti innan um allt fína og fræga fólkið! en maður verður nú að vera einsog fáviti einusinni og einusinni, þýðir ekki að vera alltaf fullkominn!!!!! svo fór ég á sjóvið um seinustu helgi, Hreymur var að syngja í staðin fyrir Jónsa og mér fannst hann bara nokkuð góður!! en já þetta kvöld endaði ekki með hörkudjammi í hörku partýi, ég og hún Lovísa "eat that" fórum ekki á ballið eftir sjóv heldur í partý heim til Björns Ágústar sem endaði snögglega af einhverjum ástæðum, já og um 2 leiti enduðum við heima hjá henni undir sæng uppí sófa með EINTÓMT RITZ KEX(sem bragðaðist af einhverjum ástæðum alveg óvenjulega vel) að horfa á fóstbræður, og vorum við báðar steinsofnaðar um hálf 3! svo vaknaði ég með hendina ofaní ritz pakkanum og fór heim að sofa!! gott djammúthald þarna á ferð;) en já lag dagsins er klárlega mr blue sky með Electric light orchestra!!! haha sona fyrir nörda!! en jæja þetta er orðin nógu löng og leiðinleg ritgerð held ég, gjörsamlega greinaskila og punktasnauð, en takk fyrir lesturinn og bless..mússímússímússss
Bjarney fullkomna


» 10 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 22:20:49 / bjarney_e

Þriillleeerr

nneee hæææææ, hvað segist, ég hef ekkert að gera, datt í hug að blogga og nú veit ég ekkert hvað ég á að skrifa! hólí mólí! er að hlusta á ÞRIILLLER með mækúl djakkson, ógeðslega skemmtó! en nú er menningaferðin framundan sem ég ætla í ef ég fæ frí í vinnuni, verður öruglega mjög gaman, vantar bara griðarstað til að fá að baða mig og sofa mig og kanski kúka og pissa mig(nei ojj kúka). það er ekkert að gerast þessa daga, fæ sona sjokk tilfiningu í annarslagið þarf að læra ómanneskjulega mikið fyrir uuu næstu daga, þegar þessi sjokk tilfining gerir vart við sig þá er ég alltaf næstum því farin að læra, en þá er bara best að setjast niður og bíða þangað til þessi tilfining líður hjá, kanski líta á bumbulíng og hugsa að maður þurfi að drífa sig í ræktina, önnur sjokktilfining kemur upp, það sem er best að gera þegar sona tvöföld sjokktilfining kemur upp er að leggjast í gott bað!:haha: þá tekur letin yfir og öll "virkni" kvefur hraðar en vindurinn! já börnin mín, þá vitiði það;) var að fatta að fyrsti kafli í sálfræði er 100 bls en ekki 10:) ehh já það minnir mig á það, er farin að lesa í sálfræði:) og sturta mig:) bless sæhestarnir mínir, og endilega komið með hugmyndir að góðu bloggi handa mér:) er farin að hljóma einsog þunglindur geðraskana geðsjúkingur með tvöfaldann geðklofa sem hver og einn er geðklofi þegar ég blogga, með fyrirfram þökk fyrir komment
BJÖRNINN


» 10 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 14:21:57 / bjarney_e

hehemm

jæja, ég hef ákveðið að blogga, ég hreynlega man ekki hvenær ég bloggaði síðast! en jújú eitthvað hefur nú á daga mína drifið! fór t.d til reykjavíkur á menningarnótt... þá meina ég að ég fór til rvk þegar menningarnótt var, ekki að ég hafi tekið þátt í "menningar"nóttinni! ég var nefninlega í brúðkaupi hjá skildmennum Þorláks og systur Bóbó(Lovísu)! þar var grenjað, dansað, drukkið og hlegið! mjög gaman bara! en jú maður varð nú að fara og kíkja aðeins útí bæ, löbbuðum að vöfluvagninum og ég fékk mér VÖFFLU nammm heven on örþ þessar vöflur sko;) fékk hana meirasegja frítt og allt, það var hress náungi fyrir aftan mig sem var svo þyrstur að hann gat ekki beðið á meðan ég fékk mér vöfluna þannig hann borgaði bara fyrir mig og appelsínusvalann sinn:) já svona getur nú fulla fólkið verið fínt! en núna er bara skólinn byrjaður með trompi! ég veit eiginlega ekkert hvað er að gerast! er í svo fáum tímum en samt 23 einingum! sem þýðir náttúrulega FJAAARNÁM! ég er ekki að standa mig í öllum þessum fjarnámsáföngum, gleymi alltaf að ég sé í þeim o.s.fr.:haha: en já sumarið er búið að vera með eindæmum hressandi, vinna í Olís og fá ágætis péninga! þess má geta að eina hreyfingin sem ég hef stundað í sumar er berjamó! berjamó rokkar! aðalbláberin eru sko stór þetta árið:haha: já börnin mín, ég dró sko fram stígvélin og pollagallann og fór í berjamó í rigningu:lol: kom svo blaut og hrakin heim! eflaust er þessi bloggfærsla einkar glaumvekjandi.... en mér finnast bara ber góð..ha..er það glæpur? mæti svo með þau í vinnuna og bý mér til darararaddara AÐALBLÁBERJAÞEYTING! mæli ég eindregið með því rassgötin mín:haha: en nú ætla ég að fara að æfa mig á gítar! já ég er sko byrjuð að æfa mig á gítar! er í einum tíma á viku (+ 2 píanótímar á viku..neeerd)og því eru framfarirnar miklar og ég hljóma einsog atvinnu rokkari! er að spá í að tengjann við magnara og leifa næstu tveim götum að vera þess aðnjótandi þegar ég reyni að hitta á rétta strengi..kansi g-strengi..HAHAHAHHAHAHAHA... en ég er farin verið sæl:haha::haha:8|

Bjarney is out

Arthur dagsins:


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.07.2006 19:09:56 / bjarney_e

yo

uuu, ég nenni ekki að vera alltaf að færa bloggfærsunar mínar hingað inn! þannig að e-r er alveg ógó spenntur fyrir því að lesa mínar glaum-vekjandi blogg færslur bendi ég viðkomandi á að fara inn á síðuna: http:www.blog.central.is/bjarney_e
Bjarney Einarsdóttir

» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2